Kambsvegur 20, 104 Rvk.
13.11.2006 23:59:52 / Greta

Ný síða - loksins....

Hæ allir..
Það er loksins búið að skíra prinsinn og heitir hann Ingólfur Breki.  Ingólfur heitir bróðir Siggu og er Breki útí loftið, fallegt nafn á fallegasta stráknum....

Nú erum við loksins búin að stofna barnalandsíðu og er slóðin http://barnaland.is/barn/51251
og eru komnar inn fullt af myndum þar en hin síðan var full og þessvegna var ekki hægt að setja inn fleiri myndir... Mér finnst nú sumir sem kvarta yfir myndaleysi alveg geta tekið þetta til sín líka, nefnum engin nöfn, Linda og Una hóst hóst....  En já núna förum við að einbeita okkur meira að barnaland síðunni og spurning um að loka þessari bara.. sjáum til hvað við nennum að halda úti 2 síðum lengi...

Adios amigos...

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 13:41:33 / arnaldur

Nokkrar nýjar myndir...

...eru komnar á veraldarvefinn. Því miður hafði gleymst að taka myndir á vélina mína þegar Norðfjarðar afi og amma komu í heimsókn til okkar um daginn. Allar myndirnar voru eiginlega bara teknar á vélarnar þeirra. Það eru einhverjar myndir þar sem við erum öll að borða kjúlla en maður vill nú ekkert hafa það með myndum af svona sætum strák.
Nú, þarna eru nokkrar myndir þegar Jónína frænka kom í heimsókn ásamt Brynjólfi 10 ára frænda. Amma Sigga er þarna auðvitað á nokkrum og svo náttúrulega aðal söguhetjan....nefnilega litli kútur, sem enn á ekkert nafn.... :S

» 9 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 21:45:21 / arnaldur

Elsku vinir

Litla fjölskyldan á Kamsveginum er djúpt snortin og þakkar innilega allar þær fjölmörgu kveðjur sem okkur hafa borist, hvort sem það eru heimsóknir hingað á síðuna, kvittanir og "hilsen" í gestabók og athugasemdirdótið, hringingar og auðviað sms sem er orðin órjúfanlegur þáttur af lífi okkar allra. Takk fyrir.

Annar er það að frétta af litla "pjáng" (Pjángur er eitthvað orð sem Birgir afi notar á litla labbakút, en Labbakútur er einmitt eitthvað orð sem pabbinn notar á drenginn) að hann er bara yndislegur. Hann drekkur, sefur, hikstar, pissar og kúkar. Allt sem lítil börn eiga að gera. Þess á milli finnst honum ofsalega gaman að hanga með foreldrum sínum og pæla í hlutunum. Amma Sigga er dugleg að koma í heimsók og það finnst honum einstaklega gaman líka. Sumsé, allt er gott.

Persónuleikinn fer að koma meir og meir í ljós og vonandi tekst okkur, hinum nýbökuðu foreldrum (freshly baked parents) að finna eitthvað fallegt og lýsandi nafn á guttann svo að hann fari nú að sleppa við gælunöfnin fyrr greindu. Það liggur í augum uppi (it lies in the eyes upstairs) að svona fallegur lítill drengur þarf að fá fallegt "stórt" nafn og að vanda skuli valið.

Jæja þetta er nóg raus í honum pabba "gamla". Það má kannski segja fólki svona að lokum og hér kemur rúsínan í pylsuendanum (the raising in the end of the hot dog) að nýjar myndir eru komnar á síðuna.

Njótið heil elskurnar og góðar stundir.

» 12 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 15:12:01 / Greta

Svona gerðist þetta....

Jæja þá er maður sestur fyrir framan tölvuna eftir allt þetta erfiði.

Þetta byrjaði með því á mánudeginum að við mættum í monitor og mat og var okkur sagt að gangsetning yrði um kvöldið.  Við áttum að mæta kl. 20:00 fá stíl, fara aftur heim og koma svo ef eitthvað myndi byrja að gerast, ef ekki þá bara koma til að fá annan stíl og svo að lokum sprengja belginn... Við því ákváðum að fá okkur eitthvað létt að borða og skella okkur í bíó eftir stílinn, eða það héldum við...
Mættum þarna kl. 20:00 og var okkur þá tjáð að ég ætti að sofa uppfrá, alein..... 8|
Fékk stíl kl. 20:00, Arnaldur fór heim kl. 23:00 og þá átti ég að reyna að sofna.  Ekki gekk það nú og fékk ég því svefntölfu kl. 00:30.  Ekki dugði hún og ég bara gat ekki sofnað, byrjaði að finna fyrir verkjum um 02 og svo um 3 leytið var hringt uppá fæðingargang og ég sótt og færð inní fæðingarherbergi þar sem ég fékk kælingu að framan og hitapoka að aftan og sat svo þannig í hægindarstól þegar Arnaldur kom til mín en ég beið með að hringja i hann þangað til ég var virkilega farin að finna til en ég hringdi í hann um 6 leytið og sagði honum að hann mætti svona fara að koma.. Drengurinn skellti sér í sturtu fékk sér góðan morgunmat og var mættum um 8 leytið til mín. Þá voru verkirnir orðnir frekar sárir og var ég í móki meira og minna allann tímann, gat bara ekki talað.. 
Þá mætti einnig ný ljósmóðir á vakt og var hún með okkur allann tímann.  Hún sprengdi belginn og stakk nokkrum nálum í mig því kælingin var ekki að virka en fanst nú þessar nálar ekki virka neitt heldur og grenjaði út mænudeyfingu nokkrum tímun seinna en ég var að gefast upp. 
Um 11 leytið kom loksins svæfingarlæknirinn og var ég búin að heimta það nokkrum sinnum að hann yrði sóttur og fannst þetta taka alltof langann tíma.  Eftir deyfinguna þá var bætt við drippi því útvíkkunin var bara 5 þarna um 11 leytið.  Ég gat nú sem betur fer eitthvað dottað eftir að ég fékk deyfinguna en ég hefði ekki getað klárað þessa fæðingu án hennar..
Um 3 leytið var rembingstilfinningin orðin frekar mikil og mátti ég fara að rembast þá voru þarna 2 ljósmæður inni hjá mér og héldu utan um sitthvorn fótinn og svo remdist ég bara og remdist... dálítið svona uppá gamla mátann. 
Eftir 20 mínútur í rembing og eftir að hafa snert kollinn og Arnaldur skoðað hann kom þessi myndar drengur í heiminn.  Ég fékk hann ekki strax uppá bringu því naflastrengurinn var svo stuttur að Arnaldur þurfti að klippa fyrst og svo fékk ég hann á bringuna.  Hann lá þar meðan ég rembdist við að koma fylgjunni út en það gekk nú eitthvað ílla..  Arnaldur fékk hann einnig á bringuna með ég hélt áfram að rembast en það tók um 1 klst að fá fylgjuna, rétt slapp við uppskurð sagði hún mér.
Hann fór svo loks á brjóst 1 og hálfum tíma eftir að hann kom í heiminn en við vorum ekki ennþá búin að fá málin á honum og ekkert búið að þrífa hann. Það þurfti að sauma mig saman og loksins var hann mældur og eins og þið hafið nú flest öll heyrt þá var hann rétt tæpar 17 merkur og 53 cm.
Við fengum svo loksins að fara niður í hreiður og fengum við fyrstu gestina til okkar um 7 leytið þegar Anna Kristín og Valgarður mættu í heimsókn en þau voru búin að vera í Rvk og bíða eftir guttanum frá því 12. okt. og voru að fara austur strax daginn eftir.  Um 8 leytið komu svo Sigga, Siggi og Biggi í heimsókn með mat handa okkur og fullt af gjöfum..
Fyrsta nóttin var frekar erfið en guttinn vildi bara ekki taka brjóstið aftur, tók loksins um 1 leytið um nóttina eftir aðstoð og svo ekkert fyrr um morguninn aftur eða um 11 leytið.. Hann var bara með nægan forða og vildi ekkert borða, var dálítið að æla en hann þurfti að hreinsa sig aðeins fyrir þetta allt saman....  Hann fékk svo brjóst aftur um 6 leytið en þá vorum við farin að hafa áhyggjur af þessu öllu... Fengum að fara heim og fengum ljósmóðir til okkar um 9 leytið sem gaf honum saltvatn því hann var ennþá ekkert að vilja brjóstið.  Náðum að gefa honum brjóst um 8 leytið morguninn eftir en með smá hjálp og drekkur hann núna á svona 5-6 tíma fresti. 
Vaknaði tildæmis um 4 leytið síðustu nótt en drakk í 1 og hálfann tíma, fékk aftur brjóst um 11 leytið og heyrist mér hann vera að rumska núna en mér finnst þetta alltof langur tími á milli gjafa en ljósmóðirin sem kemur til okkar sagði að þetta væri allt að koma og hann væri greinlega bara vel settur og við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af þessu, hann myndi drekka meira með tímanum....  Við foreldrarnir reynum að njóta þess að sofa bara vel yfir nóttina í staðinn..;)

En þetta var svona smá langloka, en þið eruð þá búin að heyra söguna...

Látum heyra í okkur fljótlega með Barnaland síðuna en það er ekki búið að virkja hana ennþá...

Takk fyrir kveðjurnar...


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 23:41:25 / arnaldur

Litli Labbakútur

Halló allir og innilegar þakkir fyrir, hringingarnar, sms-in, skrifin og allt.
Já það er rétt að hann er loksins kominn út úr henni mömmu sinni og er bara ansi líka hress með það. Ég vildi óska að ég gæti skrifað eitthvað af viti hérna en ég er bara dauðþreyttur og ætla biðja Grétu um að koma með söguna hérna inná morgun, þ.e.a.s ef hún kærir sig um það. En það má alltaf skrifa eitthvað fallegt og skemmtilegt um lilla og auðvitað höldum við því bara áfram.
Ætlaði líka að benda fólki á að það eru komnar nokkrar myndir af guttaling á netið. Við erum einnig að vinna í því að koma með Barnalandssíðu.
Myndir Myndir Myndir !!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 17:16:41 / Greta

1 dagur eftir.

Fórum í skoðun áðan og var hreift við belgnum enn og aftur.  Útvíkkun ennþá 2 og allt lítur vel út, en ekkert að gerast!!  Eigum að mæta kl. 20:00 í kvöld til að fá stíl sem vonandi kemur einhverju af stað en þó vonandi að ég nái að sofa eitthvað um nóttina svo á morgun ef ekkert er búið að gerast þá á að sprengja belginn og verðum við þá uppá fæðingardeild þangað til guttinn er kominn í heiminn... þannig að það er um að gera að hafa með sér sudoku bókina / eitthvað að lesa / spil / geisladiska.... sé fram á laaanngan dag:!: en þetta verður vonandi allt þess virði þegar kútur kemur loksins í heiminn :D
Ég er bara greinilega ein af þeim sem geng með í 42 vikur og verð bara að sætta mig við það... Maður stjórnar þessu víst afskaplega lítið og ekkert er vitað um hvað það virkilega er sem kemur þessu í gang sem mér finnst nú alveg ótrúlega glatað miðað við alla tæknina í dag að það sé ekki hægt að komast að því hvað virkilega veldur? 
En ég vonandi slepp við keisara og það var það sem ég vildi helst ekki gera svo ég reyni bara að þakka fyrir það meðan það er....
Vonandi blogga ég hérna næst með lítinn gutta í fanginu :D

Takk fyrir allar kveðjurnar, gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með okkur.....

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 13:42:54 / Greta

41 + 5 eða 40 + 12

Allt rólegt á Kambsveginum ennþá, finn stundum verki þegar ég slappa af á kvöldin og held nú að loksins fari eitthvað að gerast en nei um leið og ég minnist á það þá bara hættir þetta og ekkert gerist, hann ætlar að verða rosalegur stríðnispúki greinilega!!
Ég er nú búin að segja honum oft og mörgum sinnum að það er dónalegt að hanga svona í húsum en hann hlustar ekki á mig, sparkar bara og kemur sér betur fyrir.. Ætli þetta sé forsmekkurinn á því sem eftir er að koma, sofa mikið eins og pabbinn, láta biða eftir sér, vekja sig í skólann/vinnuna, láta dömurnar bíða... :lol:

Við eigum að mæta á morgun í monitor og mat og verðum líklegast sett af stað annað kvöld ef ekkert gerist í nótt..... Búið að reyna öll trix aftur og aftur en ekkert virkar!!!
Ég gefst upp!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 17:25:02 / Greta

12 okt

Ekki lítur út fyrir að kútur ætli að koma á afmælisdegi Ömmu Úndu eða Lindu systir, vill greinilega sinn eigin afmælisdag, föstudagurinn 13 á morgun og svona... ;-)
En já við fórum í monitor í gær og líður kút bara voða vel, við vorum greninilega eitthvað að misskilja eða vona en við komum aftur á morgun í svona monitor ef ekkert er farið af stað og svo er það ekki fyrr en á mánudag sem gangsetningin er ákveðin ef ekkert er búið að gerast þá. :$
Jú það er sko búið að hoppa eins og kanínur og gera öll trix í bókinni, hann er bara ekki tilbúinn.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 15:22:21 / Greta

vika 41

12 okt segið þið... já það er aldrei að vita...
Fórum í skoðun í morgun og lítur allt rosalega vel út, komnir 2 í útvíkkun og hreyfði  hún við belgnum og svo er bara að vonast til að eitthvað fari að gerast núna. 
Förum í skoðun á morgun uppá Lansa, athuga stöðuna á þessu öllu og ákveða dagsetningu ef gangsetning verður málið og fanst henni föstudagurinn 13 líklegur þar sem yfirleitt er sett af stað41 + 4 en það er á laugardaginn og vilja þau ekki setja af stað yfir helgi...  Svo við bara vonum það besta og eitthvað gerist í kvöld / nótt, búið að reyna allar aðferðir nema pirringskastið... nú fer að reyna á það bara já og kampavín - trönuberjasafi og hunang á það alltaf eftir líka.....


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 12:29:57 / Greta

+++

Eitthvað ætlar nú þessi prins að láta bíða eftir sér....
Gamla fólkið búið að reyna allt en hann er bara ekki tilbúinn fyrir þennan stóra heim greinlega.. Þó hann sé nú reyndar löngu orðinn tilbúinn og nógu stór!! Er alveg hætt að lítast á þetta... Spurning hvort hann eigi nokkuð eftir að geta notað af þessum stærð 56 fötum sem keypt voru..
Vildi bara láta vita að það er ekkert í gangi.... og við stundum gleymum símanum eða hann er á silent og við svörum ekki alltaf, erum stundum bara úti að þvælast... þýðir ekki að við séum farin uppá deild og allt í gangi.... við látum ykkur vita!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 21:26:26 / arnaldur

D-Day + 3

Jahérna.
D-Dagurinn + 2 gleymdist víst en það er víst ókei þar sem herr bumbubúi er bara með stæla og lætur ekki sjá sig. Sumsé óbreytt ástand á Kambsveginum. Hingað er hringt þrjúhundruð sinnum á dag til að spyrja frétta. Fólk heldur víst að við munum bara bjóða í tveggja ára afmælið. En til þess að þetta sé algjörlega á hreinu.... það er ekkert að gerazt.
Læt hérna fylgja með mynd af Grétu sætu en við fórum í smá göngutúr í dag í Heiðmörkinni til að skoða haustlitina...já það er fallegt í Heiðmörk



» 5 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 21:25:05 / arnaldur

D-Day + 1

Allt er með kyrrum kjörum á Kambsveginu og sá litli lætur enn fara vel um sig í mallanum á sinni mömms. Það er eitthvað sem Pabbs botnar ekkert í enda er ég alltaf að segja honum að bæði er plássið orðið lítið, mamms orðin þreytt og að ég sé miklu skemmtilegri en maginn á mömms... meir að segja séð innanfrá!
En já, við erum orðin anzi spennt og bíðum bara eftir því að allt fari í gang. Gréta er með hausinn fullann af einhverjum kerlingar trixum eins og töfradjús mixuðum úr champange, trönuberjasafa og hunangi, einhverjum þrýsti-punktum á löppunum sem eiga að svínvirka og ég veit ekki hvað....
Ég reyni bara að akta kúl yfir þessu og yfirvegaður. Segi henni að taka því rólega og svoleiðis. Ég reyndar panikka i hvert skipti sem hún andar, stendur upp, vaknar eða bara gerir eitthvað...... Hver þarf að róa hvern?
Hilsen í bili..........any day now.........

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 18:04:10 / Greta

Arnaldur byrjaður í fríi.

Jæja nú er ekki annað hægt að segja en maður sé byrjaður að bíða..
Arnaldur kominn í "sumarfrí" og er  honum strax farið að leiðast hérna heima...  ég fór í sund og leið minn dagur fljótt en honum fannst afskaplega lítið hægt að gera.. Guttinn ekkert að láta sjá sig allt með kyrrum kjörum.. Due day er á morgun en erum nú ekki að sjá fram á að eitthvað gerist næsta sólarhringinn.. Svo finnst okkur 06.10.06 svo fín dagsetning, kannski ég reyni bara að krossleggja þangað til þá en strax þann morgun byrja öll kerlingarráðin eins og að drekka kampavín-trönuberjasafa og 1 tsk af hunangi, skilst að konum í Þýskalandi og Sviss sé gefinn þessi drykkur og hann svínvirki, hlaupa upp og niður stiga og virkja kallinn í smá game!!

Annars bið ég alla bara um að senda okkur góða strauma og það vonandi styttist í þetta... Aldrei meira en 2 vikur núna!! :D

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 12:53:06 / Greta

Bowen er snilld

Byrja á því að tilkynna að það er ekkert að gerast!! Vika í settan dag akkúrat í dag.
Búin að setja inn símanúmerið þitt Una :)

Ég var orðin frekar þreytt og að drepast í grindinni og bakinu, hafði ekkert farið í Bowen í 4 vikur, hélt ég myndi halda það út en gafst upp í gær og fékk tíma í gærkveldi. Var orðin þreytt og farin að halda að ég myndi nú bara ekki hafa orku í fæðinguna. Eftir tímann í gær þá átti ég þessa líka yndislegu nótt og svaf heila nótt án þess að vakna í hvert skiptið sem ég hreyfði mig og fór ekki frammúr fyrr en um 11:30.. haldiði kæruleysið!! En mér líður æðislega og til í allt núna!!

Arnaldur hættir að vinna á föstudag er þá kominn í mánaðarfrí, ætlar að vera í sumarfríi í október en gaurinn hefur ekkert sumarfrí fengið og orðinn langþreyttur og ætlar því að stjana í kringum mig þangað til guttinn fæðist og lengur auðvitað... ;) hann verður svo í fæðingarorlofi í desember.
Við erum orðin mjög spent yfir því að fá þennan einstakling í hendurnar og finnur maður ábyrgðina hellast yfir sig meira og meira eftir því sem nær dregur deginum.. og hvað þá að finna nafn á þennan einstakling sem þarf að bera það alla sína ævi....

Talandi um nöfn....
Þegar ég var í USA þá fékk ég martröð eina nóttina og var að segja Unu vinkonu frá því og sagðist hafa fengið Náttmör (Nightmare) og er nú ekki hægt að gleyma þessu gullkorni (ásamt því að sjá "bátinn" fljúga (Una er sú eina sem skilur þetta örugglega):lol:
En já ég semsagt var að lesa í einhverju af þessum endalausu blöðum sem koma innum lúguna hjá manni um strák sem var að fá samþykkt hjá mannanafnanefnd nafn og lét bæta því við sitt nafn en það var nafnið Náttmörður en hann lenti nefnilega í því þegar hann var í USA að fá Náttmörð og var svo hrifinn af þessu að hann fékk það samþykkt og heitir þetta núna!!! Fannst þetta algjör snilld þegar ég sá það að ég var ekki sú eina sem hefur fengið náttmör / náttmörð :lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7